Stirðir Strákar – Mjúkir
3x í viku!
mán/mið/fim kl:11:10 (45-50 mín)
ATH: Á fimmtudögum breytum við aðeins til og kíkjum niður í styrktarsalinn okkar þar sem við tökum fyrir styrktaræfingar með bjöllum og lóðum. Hentar vel fyrir byrjendur! – Sem og fyrir vana.
Staðsetning: Ármúli 17a – Júdófélag Reykjavíkur, gengið inn um hlið hússins.
Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta námskeið með aðeins mýkri nálgun en Stirðir Strákar. Hér er aðeins minni ákefð og er hreyfiflæði ekki kynnt í þessum tímum.
Tímarnir henta einkar vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í átt að auknum hreyfanleika og fyrir þá sem eru að kljást við vandamál innan stoðkerfisins. Þá henta þessir tímar líka fyrir þá sem eru að stunda önnur áhugamál/íþróttir og vilja bæta hreyfanleika þjálfuninni við inn í prógrammið sitt.
Mikil áhersla er lögð á að styrkja og auka hreyfanleika liðamótanna með æfingum sem fókusa á styrk og liðleika og þannig vinna í “internal strength” líkamans.
Mikil áhersla er lögð á að auka hreyfanleika hryggsins og vinna bug á verkjum í baki. Þá er einnig mikil áhersla lögð á aðra vöðvahópa og liðamót, svo sem core, mjaðmir, hné, nára, ökkla, axlir o.fl.
Í lok hvers tíma tökum við Wim Hof öndun sem hefur mjög jákvæð áhrif á liðleika þjálfun, streitustjórnun o.fl.Hægt er að skala æfingar niður og upp eftir hverjum og einum svo allir fá tækifæri til að ná árangri miðað við sitt getustig.
***Persónuleg nálgun***
Áskriftar möguleikar
Ótímabundin áskrift með 3 mán uppsagnarfresti kr. 19.900,- SKRÁNING HÉR
Stakur mánuður kr. 24.900,- SKRÁNING HÉR
Klippikort 10x 29.000,- Gildir í 3 mánuði SKRÁNING HÉR