Fjarþjálfun – Æfingabanki
Aðgangur að æfingabanka með yfir 50 myndböndum fyrir öll helstu liðamót og vöðvahópa. Þú stjórnar algjörlega hvaða æfingar þú tekur eftir því hvað þú þarft að leggja áherslu á út frá þínum markmiðum og stöðu líkama þíns. Þú getur tekið æfingarnar hvenær sem er og eins oft og þú vilt innan áskrifta tímabilsins.
Æfingar koma inn í aðgengilegu appi – þú ýtir á PLAY og fylgir mér í gegnum æfingarnar, einnig er hægt að nálgast æfingarnar á þínu svæði og þú getur horft á þær í síma, tölvu eða sjónvarpi.
Verð: 3.900 pr/mán
Linda
“Ég hef hlaupið mikið gegnum tíðina og mjög reglulega síðustu kannski 10 ár.
Hingað til ef ég komist upp með að teygja alltof lítið en í vor byrjaði ég að fá verk í mjöðmina og stífnaði mikið í kálfum.
Ég hugsaði með mér að nú kemst ég ekki lengur upp með að trassa teygjur og skráði mig í online prógram hjá Lilju.
Það er lygilegt frá því að segja að núna rúmum þremur vikum eftir að ég byrjaði að gera æfingarnar samviskusamlega er verkurinn í mjöðminni svo gott sem farinn og kálfastífnin alveg farin.
Mæli 100% með þessum æfingum og svo margt nýtt og gagnlegt sem ég hef lært og ekki gert áður. Takk fyrir mig”