Image Alt

Sterkar konur

Sterkar Konur 

Þriðjudaga & Fimmtudaga

Hópur 1: kl: 06:50 – 07:40

Hópur 2: kl: 07:45 – 08:35

Staðsetning: Ármúli 17a – Júdófélag Reykjavíkur, gengið inn um hlið hússins.

“Ég hef verið að lyfta í ræktinni en þessir tímar gefa manni bara eitthvað extra” – Inga Heiða

“Í fyrsta skiptið í langan tíma hlakkar mig til að mæta á æfingar” – Olga

Ég ætla hjálpa konum að komast í sitt besta líkamlega og andlega form! Mig Langar að konur finni kraftinn sinn og upplifi að þær séu ósigrandi!

Skráning hér

Hentar þetta námskeið þér? 

Þetta námskeið er hugsað fyrir konur sem langar að finna kraftinn sinn, langar að taka vel á því með persónulegri nálgun í fámennum hópi kvenna (10-12) undir handleiðslu þjálfara.

Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru vanar að lyfta og djöflast í ræktinni og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í lyftingum og þjálfun. Við æfum á þeim stað sem við erum í lífinu almennt, hlustum á líkamann á sama tíma og við ögrum okkur líka.

Ef konur eru að kljást við langvarandi vandamál í stoðkerfinu og eiga erfitt með að lyfta lóðum og taka vel á því vegna þess þá mæli ég með því að koma til mín í einkatíma fyrst svo við getum tekið stöðuna og unnið okkur út úr vandamálum sem kunna vera til staðar.

Andlegi þátturinn ekki síður mikilvægur

Ásamt líkamlega þættinum, þá spilar andlegi þátturinn ekki síður inn í hugmyndina með þessari þjálfun. Auka sjálfstraust, upplifa sig ósigrandi, viðhalda lífsorku, kynorku og almennri gleði.

Styrkur: Lyftum þungt & milliþungt. Bjöllur og Lóð

Hiit: High intensity æfingar, assault bike, róðravél, Medicine boltar o.fl.

Plyometrics: Sprengikraftur, sipp, hopp o.fl. (Fyrir sterkari bein)

Sit: Sprint interval training 100% ákefð í stuttan tíma og lengri pásur

Áskriftar möguleikar:

  1. Stakur mánuður kr. 23.900,- 
  2. 4 mánuðir (apríl – Júní) kr. 55.000,-  (hægt að dreifa í 3 greiðslur) 

SKRÁNING HÉR

Ef það eru einhverjar spurningar eða vangaveltur, ekki hika við að senda mér línu á [email protected]