Image Alt

Stirðir Strákar

Stirðir Strákar

Vilt þú geta hreyft þig eins og áður? 🙌🏼
➢ Vilt þú vinna bug á stirðleika & styrkja þig í leiðinni?
➢ Ertu að glíma við þreytuverki í stoðkerfi og vilt komast út úr þeim vítahring? 👌🏼

Stirðir Strákar hentar öllum þeim sem vilja bæta hreyfanleika og frelsi líkamans til daglegrar athafna og fyrir áhugamál og aðra íþróttaiðkun. Fyrir þá sem vilja styrkja og liðka líkamann, auka samhæfingu, jafnvægi, líkamsvitund og koma sér í sitt besta líkamlega form.
Í tímunum gerum við ýmsar styrktar & liðleika æfingar og þjálfum líkamann “inside out” með því að auka “internal strength” líkamans.

Í þessum tímum tökum við einnig fyrir hreyfiflæði, en hreyfiflæði er mikilvægur þáttur í ástundun hreyfanleika þjálfunnar. Í flæðinu vinnum við í mörgum þáttum; við ögrum taugakerfinu okkar með nýjum hreyfingum, rífum upp púlsinn, þjálfum upp styrk & liðleika, vinnum í þoli, snerpu, jafnvægi, samhæfingu og aukum líkamsvitund okkar.
Í lok hvers tíma tökum við Wim Hof öndun sem hefur mjög jákvæð áhrif á liðleika þjálfun, streitustjórnun o.fl. o.fl.

Hópur 1: mán/mið kl 12:00 (50-60 mín)
Hópur 2: þrið/fim kl: 12:00 (50-60 mín)

Staðsetning: Ármúli 17a – Júdófélag Reykjavíkur, gengið inn um hlið hússins.

Ég vil að fólk geti sinnt áhugamálum sínum um ókomna framtíð án verkja og nái að bæta árangur sinn í þeim áhugamálum/ íþróttum sem það stundar.

Áskriftar möguleikar: