Ég hef verið að fást við hin ýmsu meiðsli undanfarin 10 ár. Útbungun í baki ásamt öðru. Maður reynir að hreyfa sig í kringum meiðslin, já eða hættir alveg að hreyfa sig á tímabili.
Eftir að ég byrjaði að hreyfa mig aftur var ég svo heppinn að velja Stirða stráka hjá Lilju. Ef þú ert að taka þín fyrstu skref í hreyfingu þá er ég 100% viss um að það er ekki hægt að finna betri tíma.
Ef ég missi úr nokkra tíma þá finn ég fyrir því hvað líkaminn hefur gott af þessari hreyfingu. Einnig finn ég miklar bætingar í hlaupunum og fæ loksins að upplifa verkjalaus hlaup.
I´m now 3 years into my mid-life crisis and my commitment to the triathlon has properly taken hold 🙂
The battle of aging, yet maintaining and trying to improve fitness is a constant one. However, since joining Lilja´s strength training class in November last year, I´m finding significant improvements in my bike and run disciplines.
Opening up the hip flexors has allowed me to run harder and faster and in addition the classes aid in my recovery process which in turn benefits my efforts in triathlon training. All in all, it’s now an essential part of my training.
So glad I found the class and a great and enthusiastic trainer in Lilja. ps the soundtrack in the classes is also pretty darn good too 🙂 Richard
Ég hef alltaf verið frekar stirður og oft glímt við kvilla tengdu því. Stífur í mjóbaki, erfitt að vinna á golfinu og þess háttar. Ég hef náð að halda mér þokkalegum með æfingum og yoga en aldrei verið “góður”. Í desember sl braut ég á mér ökklann og hef verið að koma mér í gang aftur.
Eftir sjúkraþjálfun og æfingar fannst mér ég vera fastur í 60% endurheimt á ökklanum sama hvað ég gerði. Ég haltraði á hverjum degi í fyrstu mínúturnar eftir að ég fór á fætur og liðleikinn var verri en nokkru sinni áður.
Ég lét því tilleiðast á enn eitt liðleikanámskeiðið til að fá mig þokkalegan aftur og valdi Stirða Stráka hjá Lilju. Það var ljóst strax eftir fyrstu vikuna að þetta var ekki venjulegt námskeið eins og ég hafði tekið áður.
Bólgur í ökklanum urðu strax miklu minni, mjaðmirnar eru liðugari (golfsveiflan er betri) og ég næ að snerta tærnar mínar í fyrsta skipti síðan ég var 12 ára. Þetta námskeið er öðruvísi en öll önnur sem ég farið á, skilar betri árangri og fær mín bestu meðmæli.
Ég hef hlaupið mikið gegnum tíðina og mjög reglulega síðustu kannski 10 ár.
Hingað til ef ég komist upp með að teygja alltof lítið en í vor byrjaði ég að fá verk í mjöðmina og stífnaði mikið í kálfum.
Ég hugsaði með mér að nú kemst ég ekki lengur upp með að trassa teygjur og skráði mig í online prógram hjá Lilju.
Það er lygilegt frá því að segja að núna rúmum þremur vikum eftir að ég byrjaði að gera æfingarnar samviskusamlega er verkurinn í mjöðminni svo gott sem farinn og kálfastífnin alveg farin.
Mæli 100% með þessum æfingum og svo margt nýtt og gagnlegt sem ég hef lært og ekki gert áður. Takk fyrir mig
Það er sjaldan sem maður hittir á fólk sem hefur eins mikla ástríðu fyrir því sem það gerir eins og Lilju. Smitandi ástríðan, fróðleiksmolarnir og að sjálfsögðu æfingarnar, sem til hins ýtrasta, bæði reyna á, teygja og toga, vöðva og liðamót. Allt leggst þetta á eitt að til að skapa þetta frábæra námskeið.
Á þessum mánuðum hef ég fundið fyrir töluverðum líkamlegum breytingum til hins betra. Merkjanlega meiri liðleika, auknum styrk og kannski ekki síst aukinni meðvitund um mikilvægi liðleika hinna ýmsu liðamóta sem hluta af bættri heilsu og vellíðan.
Þetta er námskeið sem ég get óhikað mælt með. Námskeið fyrir alla sem vilja huga að bættri heilsu hvort sem fólk er að stíga upp úr sófanum eða er í reglulegri líkamsrækt hver sem hún kann að vera.
Ég hef stundað golf í rúmlega 20 ár núna, og var hættur að geta æft eins mikið og ég gat áður vegna bakmeiðsla. Eftir að hafa byrjað hjá Lilju hefur það breyst og núna get ég æft eins mikið golf og ég vil án þess að fá í bakið. Undanfarin 2-3 ár hef ég spilað mitt besta golf frá upphafi, og það kominn fram yfir miðjan fimmtugsaldurinn. Það er pottþétt að tímarnir hjá Lilju og fróðleikurinn sem maður hefur lært eiga stóran þátt í því.
Ég byrjaði að mæta í Stirðir Strákar fyrir nokkrum árum þá rúmlega fertugur og orðinn mjög stirður og aumur í baki, mjöðmum og öxlum. Á þessum tíma hef ég séð áberandi breytingu i batnaðar. Tímarnir hafa aukið bæði liðleika og styrk verulega
Lilja er frábær og umhyggjusamur þjálfari og alltaf til í aðstoða með það sem hrjáir mann. Ég mæli hiklaust með þessari líkamsþjálfun, alveg sama hvort maður sé stirður miðaldra kall eða bara ungt fólk á besta aldri.
Ég hef bæði trú á og góða reynslu af því að aukinn liðleiki í öxlum, mjóbaki og mjöðmum ásamt styrkingu miðju, skili sér í hraðari og mýkri golfsveiflu. Æfingarnar hjá Lilju eiga stóran þátt í að sveifluhraði hefur farið úr 85-90mph í 95-100mph og að högg tvö er að meðaltali 30m nær pinna
Ég var með bakvandamál eftir árekstur og gat ekki gengið nema 1-2 km án þess að vera kvalinn og þurfa að stoppa til að teygja. Var farinn að taka 4-8 verkjatöflur á dag til að halda mér gangandi. Ég gat varla farið í golf án þess að vera á golfbíl. Eftir sjúkraþjálfun í rúmt ár og hægan bata fór ég í einkatíma til Lilju og fór að mæta í Stirðir-Mjúkir tímanna hjá henni. Árangurinn fór að koma fljótlega og í síðasta sumar var ég farinn að ganga 18 holu hring sem ég hafði ekki getað gert í 2 ár og er hættur á verkjalyfjum. Ég mæli 100% með Lilju, fjölbreyttir og skemmtilegir tímar sem hjálpa mikið ef þú ert með vandamál.
Birgir